Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Tenglar

Teljari

Almennt góðæri í landinu og krónan aldrei staðið betur gegn erlendum gjaldmiðlum!Karen Nótt Halldórsdóttir

Sælt

Er að spá í að henda inn einu bloggi þó ég þurfi að fara að drífa mig í bæinn bráðum...

Já, ég er semsagt á Laugarvatni í augnablikinu, það er vettvangsvika í skólanum og ég er búin að vera að fylgjst með kennslu í skólanum hérna heima í dag og í gær. Það var nú bara svona líka ágætt og svo er alltaf voða notó að vera heima á Vatninu. Brosandi Svo á morgun er ég að vara að skoða barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ.

Rak mig allsvakalega á það á mánudaginn að það er ekki sniðugt að læra ekki jafnt og þétt... Rétt náði að skila stóru verkefni 5 mínútur í miðnætti og var búin að vera að síðan 10 um morguninn. Nú ætla ég að fara að skrifa þessar leiðarbækur vikulega!

Það er nú sosum ekkert svaka mikið að frétta... Það er bara mjög fínt í skólanum og gengur ágætlega. Það hafa verið e-r 2-3 skóladjömm sem voru öll mjög skemmtileg og misölvuð.Glottandi Fórum í ansi skrautlega Laugarvatnsferð þar sem fyrsti bjórinn var opnaður um kl. 15. Svo á föstudaginn er vísindaferð sem ég er ekki búin að ákveða hvort ég fari í.

Annars ætla ég að halda uppá afmælið mitt þann 1. nóvember og er öllum þeim boðið sem almennt telja sig vini mína. Hlæjandi Annars fá menn nú invite á facebook eða sms þegar nær dregur.

Ætla að fara að drífa mig að kveðja foreldrana og bruna með bílinn í umfelgun!

Þangað til næst

sselB

Speki dagsins: Ekki horfa á hryllingsmyndir á kvöldin þegar vakna þarf snemma morguninn eftir.

Hinn hinsti dagurKaren Nótt Halldórsdóttir

Eigum nýjan son. Hann heitir Vilhjálmur Andrés Aðmíráll Brínika. Auglýsum eftir föður.

Ákváðum að geyma uppvaskið til morguns. Svona ef það skyldi koma heimsendir. Bömmer ef það kæmi heimsendir og maður nýbúinn að vaska upp.

Verst að ég á fullt af bjór. Ætli maður megi taka hann með sér yfir? Svona "Veldu þrjá hluti til að taka með þér" dæmi. Bjórinn, myndavélin (til að mynda herlegheitin) og sígarettur.

Þangað til næst (eða ekki)

sselB

Pæling...Karen Nótt Halldórsdóttir

Ég var að velta einu fyrir mér...

Fyrst sandur verður til úr niðurbrotnum bergtegundum, og gler er búið til úr sandi, og flísefni er svo búið til úr gleri og plasti...

Hvernig stendur þá á því að það getur kviknað í flíspeysum..?

Bara pæling...

Þangað til næst

sselB

Hlustið kæru vinir, ég skal segja ykkur sögu!Karen Nótt Halldórsdóttir

Ahjello...

Mér er greinilega ekki ætlað að halda úti bloggsíðu. Var að verða búin með færsluna, ýtti á einhvern takka og allt fór. Öskrandi

Jæja, byrja upp á nýtt.

Ég nenni ekki að koma með svaka öppdeit síðan síðast, enda er það eiginlega allt inn á Smiðjustígssíðunni (www.smidjustigurinn.bloggar.is). Ég er bara svona almennt á Laugarvatni að slá gras og fer sárasjaldan í bæinn. Fór samt í bæinn í gær og þeir sem þekkja mig hið minnsta vit að ég legg það ekk í vana minn að djamma edrú niðri í bæ enda getur miðbærinn stundum breyst í hinn versta frumskóg á vissum tímum sólarhrings um helgar. Sem er voðagaman þegar maður er með en getur virkað hálfógnvekjandi á áhorfanda. Við Minney fórum semsagt í bæinn í samfloti við Fríðu og lá leið okkar á Belly´s. Þegar þangað var komið gerðist ég skyndilega skynsöm og tók þá ákvörðun að ég nennti ekki að eiga það eftir að koma mér á Vatnið í morgun og þurfa svo að vera þunn í vinnunni svo ég ákvað að keyra bara. Jæja, á Belly´s hafði hin æðisgengna hljómsbveit The Spirit of Moonflower verið að halda tónleika fyrr um kvöldið. Við misstum reyndar af tónleikunum en náðum rétt í rassgatið á strákunum áður en þeir héldu á Kaffibarinn að dansa. (Sjáið þetta fyrir ykkur: Jónorri, Leó og Keli í trylltum dansi. Hlæjandi)
Við fórum hinsvegar á Celtic, Ellefuna og Hressó og hentumst þar til og frá á dansgólfinu sem var ágætt. Ég ætlaði nú líka alltaf að kíkja inn á Kofa og segja hæbæ við Ásu Ninnu en það einhvernvegin gerðist ekki...
Ég hef alltaf verið sú manneskja sem tekur ekk eftiir slagsmálum á djamminu. Þau fara yfirleitt alveg framhjá mér. En í gær gekk ég framhjá einum fimm. Og þau voru öll fyrir utan Hverfis... Það hlýtur nú bara að segja eitthvað um Hverfisbarinn. Hef rayndar aldrei fílað þann stað neitt, enda bara einu sinni komið þangað inn.

Fór svo bar aað vinna í dag, eftir lítinn svefn og er búin að vera einhvern vegin ómöguleg í allan dag. Líður pínu eins og ég sé þunn, held reyndar að ég verði svona sykur+koffínþunn eftir að hafa drukkuð Magic.

Var að enda við að horfa á einstaklega spennandi tælenska sjónvarpsmynd á RÚV . Hún fjallaði um tælenska konu og japanskan mann sem hittast fyrir tilviljun og ná saman þrátt fyrir að vera örgustu andstæður. Maðurinn er snyrtipinni  í sjálfsvígshugleiðingum og konan er sóði sem reykir rosalega mikið gras. Það eina sem þau gerðu alla myndina var að éta núðlur (sem gerði það að verkum að mig langaði óskaplega í núðlur, og þá eru þær aiðvitað ekki til) og reykja. Missti samt af endinum... Fúlt...

Annars er það helst í fréttum að eftir fimm daga verðum við Bríet staddar í Herjólfsdal ökrandi Lífið er yndislegt ásamt tíuþúsund öðrum! Hlæjandi Ég hlakka svooo til!  Förum á föstudegi og komum aftur aðfara nótt þriðjudags. Skemtilegur vinnudagur hjá okkur á þriðjudeginum... Óákveðinn Og ég VERÐ að mun að kaupa sjóveikistöflur! Ætla að láta reynslu mína af sjóveiki í fyrra verða þá fyrsu og síðustu!

Toba hringdi í mig í vel íðí í gærkvöldi til að tilkynna mér það að hún væri á Sauðárkróki! Náði því samt engan vegin hvað hún var að gera þar, bara að hún var með fullt af fólki sem ég þekki ekki neitt. Ég vona bara að hún hafi haft hvorutveggja gagn og gaman af þeirri ferð.

Áður en ég hætti vil ég koma eftirfarandi tilkynningum á framfæri: Tinnu og Óla vantar að finna heimili hjá góðu fólki fyrir kisuna sína hana Kötu, vegna flutninga. Fríðu Rögnu vantar líka heimili fyrir tvær litlar kisur.

Núna er ég farin að finna mér eitthvað að borða í staðinn fyrir núðlurnar sem mig langar ennþá svo í og svo er það bara rúmið mitt. Brosandi 

Sýnið mér nú að þið kunnið á lyklaborðið ykkar! Glottandi

Þangað til næst

sselB

Von bráðar, von bráðar!Karen Nótt Halldórsdóttir

Hæ!!

Ég er enn lífs ef þið voruð farin að velta því fyrir ykkur. Það hefur alveg hellingur á daga mína drifið frá síðustu færslu (annað bæri vott um algjöra félagslega fötlun) en þar sem skáldagyðjan svífur ekki alveg yfir Laugarvatni í augnablikinu nenni ég eiginlega ekki að útlista það. Ég skal koma með betri og lengri færslu von bráðar! Því lofa ég ykkur dyggulesendur! (Ég hlýt að eiga einhverja dygga lesendur, ég hef fengið fimm heimsóknir í dag og þó hef ég ekki bloggað í tvo mánuði! Hlæjandi)

Þangað til næst

sselB

Jesús minn! Hann er kominn upp á mæni!Karen Nótt Halldórsdóttir

Greetings to you all!!!

Þá er ég loks búin í prófum og er afar glöð!Hlæjandi Er búin að fá tvær einkunnir, hvorug tilefni orðu en gáfu mér þó einingar. Önnur þeirra var meira að segja úr kúrs sem ég bjóst við skítfalla í.

Annars er það á döfinni að klára þessa viku í vinnunni hér í bænum og fara svo á Laugarvatn að slá eins og undanfarin (rúm) fjögur sumur. Ég á samt eftir að sakna gríslinganna í Frístund og fólksins sem ég er að vinna með en það getur nú vel verið að ég verði þarna næsta vetur...

Annars vil ég minna þá sem útskrifuðust með mér vorið 2006 á partýið sem ég, Bríet og Ása Ninna ætlum að hýsa að kvöldi útskriftardags, þann 24. maí. Þar sem Eurovision slær saman við verður þetta einhverskonar bekkjareourovisionpartý með prom þema (semsagt fín föt og svona blómadót um úlnliðinn á stelpunum). Svo þarf ég líka e-mailin hjá öllum bekknum fyrir Nemel (sem er nemendasamband útskrifaðra ML-inga).

Svo erum við sambýliskonur að fara vestur á firði á næstunni þar sem við munum gerast ljósmæður og standa í sauðburði og skella okkur svo á sjómannadaginn á Patró.Hlæjandi Það er ekki laust við að ég hlakki bara heilmikið til!

Annars var það nú ekki meira í bili, lifið sæl.

Þangað til næst

sselB

Það sem þú gerir þegar þú átt að vera að læra fyrir próf...Karen Nótt Halldórsdóttir

Héllos!!

Það er ýmislegt sem maður gerir þegar maður á að vera að læra fyrir próf. Það er ekki endilega meðvitað og oft eitthvað sem þú telur þér trú um að þú VERÐIR að gera akkúrat núna en getir eki geymt það í nokkra tíma... Ég ákvað að búa til smá lista:

1. Allt í einu verðurðu agalega áhugasamur/söm um fréttirnar þótt þú sért engin/n fréttahaukur dagsdaglega, og telur þér trú um að þú verðir nú að horfa á fréttirnar.

2. Þú telur þér trú um (jafnvel þó það sé oft algjörlega ómeðvitað) að þú þurfir að pissa í tíma og ótíma og ert alltaf á klósettinu.

3. Allt í einu finnst þér þú verða að laga kaffi þótt þú sért búin að drekka tíu lítra fyrir.

4. Þér finnst alveg nauðsynlegt að fá þér sígó með kaffinu svo þú getir "haldið áfram" að læra.

5. Þú fattar það allt í einu að þú sért skítug/ur og þurfir nauðsynlega að fara í sturtu.

6. Þegar þú ert loks sest/ur niður eftir sturtuna og ætlar að halda áfram, þá fattarðu að þú þurfir að setja á þig rollon eftir sturtuna og tekur þér góðan tíma í það. Á meðan þú ert inn á baði fattarðu að þú verðir nú að plokka á þér augabrúnirnar því þú getir ekki látið sjá þig svona.

7. Þú ferð allt í einu að pæla í því að þú sért í slæmu formi og finnst þér þú þurfa að gera nokkrar magaæfingar, svona til að tjúna þig upp.

8. Þú fattar allt í einu að þú gleymdir að borga tryggingarnar af bílnum/leiguna/rafmagnið og eyðir hálftíma á einkabankanum.

9. Þér finnst þú nauðsynlega þurfa að fá þér aðra sígó og meira kaffi eftir allt erfiðið (lærdóminn, telur þú sjáfum/sjálfri þér trú um en var í raun sturtan, æfingarnar og einkabankinn).

10. Þér finnst algjörlega nauðsynlegt að blogga, þú hefur ekki gert það svo lengi. Nauðsynlegast er þó að blogga lista af hlutum sem þú gerir þegar þú átt að vera að læra!

Svo eru stundir sem maður er bara samviskulaus og fer á b2/youtube/bloggrúnt/vísi (reyndar hluti af skyndilegum fréttaþorsta) án nokkurs samviskubits...

Jæja...

Nú ER ég farin að læra!!!

Þangað til næst

sselB

Og hann bara brosti í kampinn með agúrkuna í vasanumKaren Nótt Halldórsdóttir

Sælur fólkur

Sjittífokk, hvað ég nenni þessu ekki! Er að fara í próf eftir 8 1/2 tíma og næ bara EKKI að einbeita mér almennilega að fjárans hljóðfræðinni! Mér finnst ég ekki vita neitt og um leið og ég reyni að lesa eitthvað virðist það fljúga eitthvert í burtu og ég þarf að byrja upp á nýtt... Öskrandi Allavega, ef ég fell í þessu ætla ég ekki að taka það upp! Ég legg það ekki á mig aftur að reyna að læra þetta! Formendur, hljóðön og þáttagreining hvað?

Æhj, allavega er þetta búið á föstudaginn, ég er mun skárri í beygingar- og orðmyndunarfræðinni (ég veit, hljómar geðveikt spennandi!) sem ég er að fara í þá.
Svo er það bara vinnan í Frístund út næstu viku og svo er ég farin á Vatnið að slá.

Það ætti að banna svona próf, geðheilsu landans vegna...

Altént

Þangað til næst

sselB

PrófophobiaKaren Nótt Halldórsdóttir

Sælir lesendur góðir.

Jæja, nú eru komin próf. Er að fara í fyrsta próf í fyrramálið, munnlegt próf í Miðaldabókmenntum. Er nokkuð stressuð, hef aldrei farið í alvöru munnlegt próf áður (munnleg próf í þýsku hjá Connie, úr e-m sögum, teljast ekki með) og hef alltaf átt erfitt með að læra fornsögur. Markmið mitt er nú reyndar ekki mjög háleitt; vil bara ná, upp
á námslánin. Svo hef ég til 6. júní til að ákveða hvað ég ætla að gera í haust. Sem sagt, ég held ekki áfram í íslenskunni. Fékk út úr áhugasviðskönnuninni, fékk hæst á S-inu, semsagt social dæmi e-ð og á að verða kennari! Hlæjandi Hverjum hefði dottið það í hug?? Birta sagði það reyndar áður en ég fór í þetta... En ekki verð ég íslenskukennari, það er alveg ljóst.

Allavega, gangi ykkur vel sem eruð í prófum, og hinir sem eru það ekki: Up yours!!!

Híhe, smá biturleiki... Glottandi Wish me luck!!

En

Þangað til næst

sselB

Ólafur konungur, pillur og pungurKaren Nótt Halldórsdóttir

Jæja gott fólk

Úff, er að reyna að böggla saman ritgerð þessa dagana. Það gengur hvorki né skríður, ég bara get ekki einbeitt mér að þessu. Á að skila henni á þriðjudaginn og ætla heim á Laugarvatn um helgina að vinna í þessu á fullu! Verð að gera það annars fæ ég ekki próftökurétt í þessum kúrsi. Ég ætla mér að ná þessu öllu saman upp á einingarnar og námslánin. Bríet ætlar líklega að koma með mér, hún er líka að skrifa ritgerð, og við ætlum okkur að grilla og kósýast inn á milli skrifa.

Í huganum er ég bara komin heim á Vatnið á mína sláttuvél að slá í sumarblíðu... En fyrst eru próf...

En að öðru. Aumingja litli kisinn minn, hann Gústi, er lasinn. Ása Ninna fór með hann til dýralæknis í dag og litla greyið fór í röntgen. Hann er nú hitalaus og ansi hress en hjartað hans slær eitthvað skrýtilega og hann andar voða ótt. Hann fékk einhverjar pillur (sem er ekki auðvelt að troða upp í hann) og svo eigum við að koma með hann aftur á mánudaginn, um leið og við förum með Jóakim í geldingu. Aumingja kettirnir, ég fíla mig sem hörmulega móður, tjopp tjopp á annann og pillutroðning á hinn.

En núna ætla ég að drulla mér að fara að læra!

Þangað til næst

sselB

Síða 1 af 4

Prófíll

Könnun

Er kominn tími á nýja könnun?

Gagnasafn